Varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna í 85 ár
Bandaríkjaher kom til Íslands í júlí 1941 í kjölfar herverndarsamnings milli landanna júlí 1941 – fyrir 85 árum. Þá var heimsstyrjöld. Í maí 1951, fyrir 75 árum, tók gildi varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna. Þá var kalda stríðið hafið.
Til að rifja upp og minna á þessa löngu sögu, forsendur hennar og þróun, birti ég aftur fyrstu greinina á vefsíðunni um alþjóða og utanríkismál en greinin birtist 4. mars 2018. Titill hennar var Hernaðarleg staða Íslands í sögu og samtíma.
Efni og niðurstöður greinarinnar, sem er rúmar 40 blaðsíður, eiga enn við í grundvallaratriðum.
Meginbreyting á hernaðarlegri stöðu Íslands á þeim átta árum sem liðin eru frá því vefsíðunni var hleypt af stokkunum felst einkum í mjög aukinni áherslu Bandaríkjahers á norðurslóðir eins og rakið hefur verið ítarlega í greinum á síðunni. Um Ísland liggur “aðkomuleið” Bandaríkjahers að norðurslóðum eins og segir í nýlegu skjali bandarískra stjórnvalda.
Ennfremur hefur það gerst á undanförnum árum að rússneski herinn – þá er átt við flugher, herskip og kafbáta – hefur horfið af svæðum í námunda við Ísland og reyndar að mestu leyti af Norður Atlantshafi. Starfsemi og umsvif rússneska Norðurflotans, en hann er miklu minni en á tímum Sovétríkjanna, beinast að því forgangsverkefni að gæta öryggis kjarnorkuherstyrks Rússlands í norðurhöfum. Hann er geymdur í kjarnorkuknúnum kafbátum sem er haldið úti aðallega í Barentshafi.
Starfsemi Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli beinist að mestu að eftirliti með kafbátaleitarflugvélum á Barentshafi og með njósnum frá sömu flugvélum með herstöðvum og umsvifum Norðurflota Rússa inni á Kolaskaga í norðvesturhluta landsins.
Um þessi verkefni og umsvif frá Keflavíkurflugvelli má einnig lesa í greinum undanfarinna ára á vefsíðunni sem og um endurnýjun mannvirkja á Keflavíkurflugvelli. Hlutverk hans er í grunninn hið sama og áður – að styðja við fælingar- og hernaðarstefnu Bandaríkjanna og NATO á Norður-Atlantshafi og í auknum mæli á norðurslóðum. Ennfremur tengist Ísland sem fyrr viðbúnaði og áætlunum sem varða loftvarnir Norður Ameríku.
Á undanförnum árum hefur farið fram frá Keflavíkurflugvelli umfangsmikið eftirlits- og njósnaflug, sem ekki var áður, til hafsvæðis úti fyrir Kaliningrad við Eystrasalt. Kaliningrad er rétt rúmlega 15 þúsund ferkílómetra og hernaðarlega mikilvæg rússnesk hólmlenda (semi enclave/exclave) milli Póllands og Litháens. Þessarar starfsemi Bandaríkjahers frá Íslandier auðvitað getið í greinum á vefsíðunni.
Stríðið í Úkrænu hefur ekki breytt hernaðarlegri stöðu Íslands líkt og komið hefur fram á vefsíðunni eftir innrás Rússa í Úkrænu. Staða Íslands að þessu leyti ræðst sem fyrr af líkum á stórveldaátökum en þær eru áfram eru talda litlar.
Hér er krækja á fyrrnefnda fyrstu grein á vefsíðunni sem birtist í mars 2018 og þar sem farið er yfir 85 ára sögu og forsendur varnarsamstarfs Íslands og Bandaríkjanna:
Click to access statha-islands-i-c3bejocc81c3b0arocc88ryggisstefnu-bandaricc81kjanna-1917-2017.pdf