Meðfylgandi viðtal er um risastórt hagsmunamál almennings – loftslagsstefnu Íslands

Loftslagsstefnan á að óbreyttu á eftir að kosta almennning og fyrirtæki milljarða á milljarða ofan ár hvert næstu áratugi í álögum ýmiskonar vegna loftslagsmála.  Þrátt fyrir að orkuskipti hafi hafist á Íslandi á fjórða áratug 20. aldar og hlutfall endurnýjanlegrar orku hér sé eitt hið hæsta í heimi.

Á það er stundum bent að losun gróðurhúsalofttegunda sé svipuð á mann á Íslandi og í Evrópuríkjum. Það er rétt en stafar frá því hvers eðlis íslenskir atvinnuvegir eru óhjákvæmilega. Það verður að hafa vilja til að horfa framan í þær staðreyndir og verja stöðu og hagsmuni þjóðarinnar eftir því. Og benda jafnframt á að þjóðarframleiðslan er mikil en losun lítil miðað við það.  

Hið háa hlutfall endurnýjanlegrar orku veldur því að að það yrði dýrara á Íslandi en annarsstaðar að halda áfram að minnka losun gróðurhúsalofttegunda til að ná yfirlýstum markmiðum stjórnvalda. Það stafar af því einfaldlega að fáir raunhæfir kostir sem máli skipta eru eftir.  Markmiðunum verður því að óbreyttu náð þannig að ríkið – það er almenningur – og fyrirtæki kaupi loftslagsheimildir á alþjóðamarkaði fyrir ótalda milljarða árlega

Þessi sérkennilega staða er afleiðing af stefnu íslenskra stjórnvalda til margra ára og ég fjallaði síðast um á hér á vefsíðunni 13. nóvember 2025 í greininni Loftslagsstefna Íslands er í ógöngum sem fyrr. Þar er lagt til að stjórnvöld kúvendi og hafist ekki frekar að til að minnka losun, hvað þá kaupa loftslagsheimildir, fyrr en önnur ríki nálgast hlutfall endurnýjanlegrar orku á Íslandi.

Í svo stóru máli verða stjórnvöld að koma fram með hugrekki og staðfestu og því stolti sem þjóðin, landið og gjafir þess eiga skilið

Komi til aðildarviðræðna við ESB yrði Ísland vitanlega að fá undanþágu frá loftslagsstefnu sambandsins. Himinn og haf er á milli Íslands og ESB í orkumálum. Á Íslandi er hlutfall endurnýjanlegrar orku um 80 prósent, í ESB er það um 25 prósent.

Hér er viðtalið: https://www.facebook.com/photo?fbid=1460982256063294&set=a.469556168539246

Leave a comment