Viðtal um Ísland og ESB og þjóðaratkvæðið

Ég var í viðtali í morgunútvarpi Rásar 2 í dag um Ísland og ESB og þjóðaratkvæðagreiðsluna – Hvað annað?

Ég lýsti meðal annars undrun minni á því að utanríkisráðherra hafnaði því í viðtali á Sýn í gær að segja hver samningsmarkmið og rauðar línur Íslands yrðu í hugsanlegum aðildarviðræðum þegar kæmi að sjávrútvegsmálum. Þessi afstaða er undarleg og óþörf.

Almennt er það svo í samningaviðræðum að aðilar lýsa sínum ítrustu kröfum í upphafi og svo kemur í ljós í framhaldinu hvernig þeim reiðir af og þá er tekið á því, hringt heim o.s.frv. Einu leyndarmálin í samningavðræðum eru hverju á að spila út gagnvart mótaðila hugsanlega sem tilslökun og eftirgjöf frá uppaflegum kröfum. En að leyna ítrustu kröfum og rauðum línum fyrir kjósendum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu – það er undarlegt – og sem sagt óþarfi.

Leave a comment