Umræða að kvikna um vanda loftslagsstefnu Íslands?

Vandi loftslagsstefnunnar stafar frá því grundvallaratriði að íslenskur orkubúskapur er allt annars eðlis og á allt öðrum stað en hjá næstum öllum öðrum ríkjum heims. Það ræðst af því að hlutfall endurnýjanlegrar orku á Íslandi er margfalt hærra en víðast annarsstaðar.

Afleiðing þessa er hins vegar ekki að auðvelda framkvæmd loftslagsstefnunnar sem mótuð hefur verið. Hún snýst um að minnka losun gróðurhúsalofttegunda enn frekar en þegar hefur orðið vegna stórfelldrar nýtingar endurnýjanlegrar orku frá fallvötnum og jarðhita, sem hófst með hitaveituvæðingu upp úr 1930.

Að minnka áframm losun gróðurhúsalofttegunda verður hinsvegar miklu dýrara á Íslandi en annarsstaðar einmitt vegna þess hve hlutfall endurnýjanlegrar orku er hátt.

Grundvallarspurning, sem á eftir að svara í umræðu hér á landi um loftslagsmál, er hvaða þýðingu þessi afgerandi munur á Íslandi og næstum öllum öðrum ríkjum hafi fyrir loftslagsstefnuna.

Eins og mál standa fela yfirlýst markmið Íslands í loftslagsmálum í sér óbærilegan kostnað fyrir samfélagið og stefnan hlýtur að lenda í ógöngum.

Í greinum á vefsíðu minni um alþjóða- og utanríkismál og viðtölum við mig í fjölmiðlum hefur verið bent á að leið út úr þessum vanda. Hún er að taka upp nýja loftslagsstefnu byggða á augljósri sérstöðu Íslands í orkumálum. Beðið verði með að reyna að ná yfirlýstum markmiðum í loftslagsmálum að minnsta kosti þar til önnur ríki hafa almennt nálgast hlutfall endurnýjanlegrar orku hér á landi.

Aðalatriði er þó að telja má útilokað að samstaða geti orðið í íselnsku samfélagi og pólitík um yfirlýsta stefnu og henni verði því óhjákvæmilega að breyta.

Umræða um þessi mál og grundvallaratriði kann að vera að kvikna. Að undanförnu hafa birst greinar eftir forystuaðila í samtökum atvinnulífs og ennfremur þingmann Sjálfstæðisflokks, þar sem loftslagsstefnan er gagnrýnd með sama hætti og sömu röksemdum og hafa komið fram í greinum mínum. Tekið er undir að byggja eigi stefnuna á sérstöðu Íslands í orkumálum.

https://www.mbl.is/mogginn/bladid/2024-08-22/ritstjornargreinar/

https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1866930/

Greinarnar sem vísað er í hér að ofan gefa innsýn í málið og umræðuna sem nú virðist hafin.

Hér er nýjasta grein mín um loftslagsstefnuna: https://albert-jonsson.com/2024/03/17/loftslagsstefna-islands-er-i-ogongum-og-samraemist-ekki-grundvallarreglum-i-althjodasamstarfi/

Leave a comment